|
Hér kemur gómsæt uppskrift fyrir 5, verði ykkur að góðu.
Uppskrift:
400 gr steinbítur eða annar fiskur
200 gr kartöflur
100 gr gulrætur
100 gr sellerírót
100 gr laukur
2 tsk saxaður hvítlaukur
50 gr fennel smátt saxaður
2 msk smjör
2 msk tómatpúrre
1 líter fiskisoð (vatn og teningur)
5 dl matreiðslurjómi
0 salt og nýmulinn svartur pipar
0 fiskikraftur til að bragð
Aðferð:
Skrælið kartöflur, gulrætur, selleryrót og lauk. Skerið í bita setjið í pott ásamt hvítlauk, fennel, smjöri, tómatpurré, fiskisoði og rjóma.
Sjóðið við vægan hita í sirka 20 mínútur, bragðbætið með salti og nýmuldum svörtum pipar og fiskikrafti. Þykkið með maisena ef með þarf. Setjið fiskibita í súpuna rétt áður en hún er borinn fram og látið standa í 5 mínútur, berið fram með nýbökuðu brauði. |