|
Bókin "Karlsvagninn" höfundur: Kristín Marja Baldursdóttir er vert að lesa. Gunnur er geðlæknir, vel stæð kona á miðjum aldri. Rétt eftir að
brotist hefur verið inn hjá henni og einhverju stolið af því sem venjan er að innbrotsþjófum lítist vel á í ránsferðum, kemur til hennar kona sem hún þekkir lítillega og biður hana um að gæta dóttur sinnar yfir helgina. Gunnur færist undan en er eiginlega neydd til að taka við þessari fjórtán ára stúlku. Hún hefur ákveðið að fara í sumarbústað, sem hún kallar að vísu vetrarhús því að sagan gerist að vetri til. Stúlkan verður því að koma með í sveitina, austur fyrir fjall.
Svo er bara að lesa bókina 
|