|
Það er gömul trú að sé tunglið vaxandi á jólum verði næsta ár
gott en sé þessu öfugt farið og tunglið sé þverrandi megi búast við slæmu ári. Um slíka hjátrú vitna þessar gömlu vísur:
Hátíð jóla hygg þú að;
hljóðar svo gamall texti:
Ársins gróða þýðir það,
ef þá er tungl í vexti.
En ef máni er þá skerður,
önnur fylgir gáta,
árið nýja oftast verður
í harðari máta.
|