Stjörnurnar, sem prýða kvikmyndahátíðina í Cannes og áhangendur þeirra hafa mátt þola strekkingsvind um helgina en þeim fyrrnefndu hefur þó tekist að halda hárgreiðslum og glæsilegum síðkjólunum á sínum stað á rauða dreglinum.
Beyoncé Knowles og Jamie Foxx voru meðal þeirra sem skelltu sér á dregilinn á leið í partí sem haldið var til kynningar á nýrri mynd þeirra, Dreamgirls. Sýnd voru brot úr myndinni en meðal annarra partígesta voru grínarinn Chris Tucker og American Idol-stjarnan Jennifer Hudson, auk íslensku "strákanna" Auðuns Blöndal og Huga Halldórssonar. Fyrir utan stóð mikill fjöldi vongóðra aðdáenda sem voru tilbúnir til að kaupa boðsmiða í partíið fyrir allt að 50 þúsund krónur.
Jamie Foxx kynnti kvikmyndina Dreamgirls í Cannes.
mbl.is/Halldór
The Rock á næsta bar og Troma-hópurinn samur við sig
Það er reyndar algengt að sjá fólk ganga um götur og gefa sig á tal við þá sem gætu mögulega reddað þeim miða í eitthvert af þeim fjölda partía sem hér eru haldin hvert kvöld. Best þykir ef möguleiki er á að hitta Hollywood-stjörnurnar. Leikarinn Dwayne Johnson, sem kallar sig The Rock, sat þó í mestu makindum á næsta bar. Hann leikur aðalhlutverkið í mynd Richard Kelly, Southland Tales, sem tilnefnd er til Gullpálmans.
Enn eitt árið vekur Troma-hópurinn athygli vegfarenda á götum Cannes. Meðlimir hópsins valsa um með skrípalátum, dónaskap og í sérkennilegum búningum. Hópurinn er á vegum óháða kvikmyndagerðarmannsins Lloyd Kaufman og kvikmyndavers hans, Troma, og hefur uppi áróður gegn því sem kalla má Hollywood-kvikmyndir. |