22  maí  2006
Eftirsótt sjörnupartí í Cannes

Stjörnurnar, sem prýða kvikmyndahátíðina í Cannes og áhangendur þeirra hafa mátt þola strekkingsvind um helgina en þeim fyrrnefndu hefur þó tekist að halda hárgreiðslum og glæsilegum síðkjólunum á sínum stað á rauða dreglinum.

 

Beyoncé Knowles og Jamie Foxx voru meðal þeirra sem skelltu sér á dregilinn á leið í partí sem haldið var til kynningar á nýrri mynd þeirra, Dreamgirls. Sýnd voru brot úr myndinni en meðal annarra partígesta voru grínarinn Chris Tucker og American Idol-stjarnan Jennifer Hudson, auk íslensku "strákanna" Auðuns Blöndal og Huga Halldórssonar. Fyrir utan stóð mikill fjöldi vongóðra aðdáenda sem voru tilbúnir til að kaupa boðsmiða í partíið fyrir allt að 50 þúsund krónur.

Fréttamynd 305270

Jamie Foxx kynnti kvikmyndina Dreamgirls í Cannes.
mbl.is/Halldór

 

The Rock á næsta bar og Troma-hópurinn samur við sig

Það er reyndar algengt að sjá fólk ganga um götur og gefa sig á tal við þá sem gætu mögulega reddað þeim miða í eitthvert af þeim fjölda partía sem hér eru haldin hvert kvöld. Best þykir ef möguleiki er á að hitta Hollywood-stjörnurnar. Leikarinn Dwayne Johnson, sem kallar sig The Rock, sat þó í mestu makindum á næsta bar. Hann leikur aðalhlutverkið í mynd Richard Kelly, Southland Tales, sem tilnefnd er til Gullpálmans.

 

Enn eitt árið vekur Troma-hópurinn athygli vegfarenda á götum Cannes. Meðlimir hópsins valsa um með skrípalátum, dónaskap og í sérkennilegum búningum. Hópurinn er á vegum óháða kvikmyndagerðarmannsins Lloyd Kaufman og kvikmyndavers hans, Troma, og hefur uppi áróður gegn því sem kalla má Hollywood-kvikmyndir.

Sat 28.mar 2009 Beygluð Beckham
Fri 27.mar 2009 Spil
Thu 26.mar 2009 Pasta með túnfisk
Wed 25.mar 2009 Réttur vikunnar
Tue 24.mar 2009 Afmælisbarn dagsins
Mon 23.mar 2009 Bókatíðindi - Karlar sem hata konur
Sun 22.mar 2009 Móðir henti nýfæddu barni í ruslatunnu
Sun 22.mar 2009 Afmælisbarn dagsins
Fri 20.mar 2009 Lést eftir léttvægt höfuðhögg
Fri 06.mar 2009 Mangó og jarðarberjasalat með kjúkling
Thu 05.mar 2009 Fótabað með frábæru baðsalti
 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 59 60 61 62 63 64 65 66 67 68 69 70 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 81 82 83 84 85 86 87 88 89 90 91 92 93 94 95 96 97 98 99 100 101 102 103 104 105 106 107 108 109 110 111 112 113 114 115 116 117 118 119 120 121 122 123 124 125 126 127 128 129 130 131 132 133 134 135 136 137 138 139 140 141 142 143 144 145 146 147 148 149 150 151 152 153 154  
 
 
   © 2006 Kello Kello - Kringlunni 4 - 103 Reykjavík - Sími: 568-4900 - kello@kello.is