22  maí  2006
Eftirsótt sjörnupartí í Cannes

Stjörnurnar, sem prýða kvikmyndahátíðina í Cannes og áhangendur þeirra hafa mátt þola strekkingsvind um helgina en þeim fyrrnefndu hefur þó tekist að halda hárgreiðslum og glæsilegum síðkjólunum á sínum stað á rauða dreglinum.

 

Beyoncé Knowles og Jamie Foxx voru meðal þeirra sem skelltu sér á dregilinn á leið í partí sem haldið var til kynningar á nýrri mynd þeirra, Dreamgirls. Sýnd voru brot úr myndinni en meðal annarra partígesta voru grínarinn Chris Tucker og American Idol-stjarnan Jennifer Hudson, auk íslensku "strákanna" Auðuns Blöndal og Huga Halldórssonar. Fyrir utan stóð mikill fjöldi vongóðra aðdáenda sem voru tilbúnir til að kaupa boðsmiða í partíið fyrir allt að 50 þúsund krónur.

Fréttamynd 305270

Jamie Foxx kynnti kvikmyndina Dreamgirls í Cannes.
mbl.is/Halldór

 

The Rock á næsta bar og Troma-hópurinn samur við sig

Það er reyndar algengt að sjá fólk ganga um götur og gefa sig á tal við þá sem gætu mögulega reddað þeim miða í eitthvert af þeim fjölda partía sem hér eru haldin hvert kvöld. Best þykir ef möguleiki er á að hitta Hollywood-stjörnurnar. Leikarinn Dwayne Johnson, sem kallar sig The Rock, sat þó í mestu makindum á næsta bar. Hann leikur aðalhlutverkið í mynd Richard Kelly, Southland Tales, sem tilnefnd er til Gullpálmans.

 

Enn eitt árið vekur Troma-hópurinn athygli vegfarenda á götum Cannes. Meðlimir hópsins valsa um með skrípalátum, dónaskap og í sérkennilegum búningum. Hópurinn er á vegum óháða kvikmyndagerðarmannsins Lloyd Kaufman og kvikmyndavers hans, Troma, og hefur uppi áróður gegn því sem kalla má Hollywood-kvikmyndir.

Thu 15.mar 2007 Spakmæli dagsins
Thu 15.mar 2007 Rómantískt afmæli Pete
Thu 15.mar 2007 Ást er
Thu 15.mar 2007 Henrik prins vill verða kóngur
Wed 14.mar 2007 Ekkert betra en eldhúsið
Tue 13.mar 2007 Kello
Tue 13.mar 2007 Veðurvísa
Mon 12.mar 2007 Björk fær fræg frönsk verðlaun
Sun 11.mar 2007 Kello ný sendingg
Sun 11.mar 2007 Leyndardómsfull ferð DiCaprio um Jökulsárlón
Sun 11.mar 2007 Spakmæli dagsins
 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 59 60 61 62 63 64 65 66 67 68 69 70 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 81 82 83 84 85 86 87 88 89 90 91 92 93 94 95 96 97 98 99 100 101 102 103 104 105 106 107 108 109 110 111 112 113 114 115 116 117 118 119 120 121 122 123 124 125 126 127 128 129 130 131 132 133 134 135 136 137 138 139 140 141 142 143 144 145 146 147 148 149 150 151 152 153 154  
 
 
   © 2006 Kello Kello - Kringlunni 4 - 103 Reykjavík - Sími: 568-4900 - kello@kello.is