Hör | Silki | Gerviefnin | Ull | Bómull |

SPUNAEFNI.

Vefjarefni (textiler) hafa verið notuð öldum eða jafnvel árþúsundum saman, en skipulagðar rannsóknir á efn-og eðlisfræðilegum eiginleikum þeirra hófst ekki fyrir alvöru fyrr en á þessari öld...Um síðusut aldarmót var til í heiminum mikill fjöldi trefja. Hér á landi voru vart aðrar tegundir notaðar en ull, bómull, hör og lítilsháttar af silki.

Fyrsta gerviefnið “Chardonnetisilki” (sem var viskósreion) kom fram árið 1889. Þótt það væri í sjálfu sér ekki sérlega gott vefjarefni, var tilkoma þess mjög þýðingarmikil vegna þess, að það var upphafið að öðrum gerviþráðum. Um síðari heimstyrjöld kom nylon, fyrsta altilbúna gerviefnið, á markaðinn.

Til þess að unnt sé að nota trefju sem vefjarefni,  verður hún að hafa ákveðinn styrkleika og vera sveigjanleg. Trefjur geta bæði verið stuttar (stapelfibre) eða mjög langar (filament). Allar náttúrulegar trefjur eru stuttar nema silki. Gervitrefjar eru framleiddar langar (filament), en eru svo stundum skornar niður (stapelfibre) til að líkjast náttúruefnum meir.

Nú er spurning hvort það takist að framleiða nægjanlegt hráefni fyrir allan þennan mannfjölda, svo við getum haldið áfram að hanaga í “tískuhringekjunni”,þ.e.a.s.framleiða efni í fatnað sem síðan er notaður í stuttan tíma.

HRÁEFNI NÁTTÚRU-OG GERVIVEFJAREFNA.

Hráefni plöntuvefjarefna (bómull og Hör) er sellulosi. Sellulosi er fjölsykra sem er í frumuveggjum planta.
Hálf-gerviefnið Viskós er framleitt úr beðmi (sellulosi) úr greni eða furu.
Hráefni dýrtrefja er aðallega eggjahvítuefni (protein).
Ullar-prótienið nefnist keratin, en það er sama próteinið og er í nöglum,
Hornum og fjöðrum. Silki-próteinið nenfist fibróin og serióin. Algerviefni eru
Unnin aðallega úr steinkolum og olíu. Einnig köfnunarefni, kolefni, vatnsefni, súrefni og fleir efnasamsetningum.

SKIPTING VEFJAREFNA

Náttúruleg vefjarefni skiptast í tvennt.
Dýravefjarefni : Ull og Silki
Jurtavefjarefni: Bómull og Hör

Gerviefni skiptast í tvennt.
Hálfgerfiefni: Viskós, Módal, Acetate og Triacetat
Algerviefni: Polyamid (Nylon), Polyester, Polyakryl og Elasthan

 
 
   © 2006 Kello Kello - Kringlunni 4 - 103 Reykjavík - Sími: 568-4900 - kello@kello.is